Nemendur í grunn- og miðstigi fá einn tíma á viku í tónfræði og tónheyrn. Nemendur í framhaldsstigi fá eina klukkustund í hljómfræði og tónheyrn og eina klukkustund í tónlistarsögu.
Kennari í tónfræði og tónheyrn er Rakel Axelsdóttir.
Kennari í hljómfræði og tónlistarsögu er Sæmundur Rúnar Þórisson.
Hljómfræði
Kennd er klassísk hljómfræði fyrir byrjendur. Námskeiðið tekur tvo vetur. Nú í haust hefst fyrri hlutinn. Kennslan felst í fyrirlestrum og æfingum sem að mestu leyti fara fram í kennslustund. Próf fara fram tvisvar á vetri, fyrir jól og að vori.
Tónlistarsaga (Kennsla fellur niður veturinn 2009-2010).
Kennd er saga klassískrar tónlistar frá miðöldum til vorra tíma. Námskeiðið tekur tvo vetur. Kennslan felst í fyrirlestrum sem sumpart eru haldnir af kennara og sumpart af nemendum. Jafnframt er hlustað á tóndæmi. Próf fara fram tvisvar á vetri, fyrir jól og að vori.
TÓNFRÆÐIKENNSLA
|
mánudagar kl. 15:00 Tónfræði / Tónheyrn 1 og 2
miðvikudagar kl. 16:00 Tónfræði / Tónheyrn 3 og 4
fimmtudagar kl. 15:00 Tónfræði / Tónheyrn 1 og 2 kl. 16:00 Tónfræði / Tónheyrn 3 og 4
|
||