Kennt er á fiðlu, lágfiðlu og selló. Nemendur geta byrjað mjög ungir í fiðlunámi eða 5 ára gamlir. Fiðluforskóli hefur verið starfræktur við skólann síðastliðin ár og hefur hann notið mikilla vinsælda.
Fiðlunemendur sem eru í klassísku fiðlunámi fá tvo einkatíma á viku, fyrir utan tónfræði,tónheyrn og hljómsveitar- eða samspiltíma.
Einnig hefur verið starfrækt þjóðlagadeild og hafa nemendur þar ýmist verið í einkatímum eins og í klassíska náminu eða í einum einkatíma (30 mín.) og í einum hóptíma (60 mín) einu sinni í viku. Einnig æfa þessir nemendur í hljómsveit einu sinni í viku. Þjóðlagasveitin hefur verið ákaflega virk undir stjórn Wilmu Young.
Kennarar eru:
Wilma Young, fiðla
Eyjólfur Bjarni Alfreðsson, fiðla og lágfiðla (víóla)