Forskólinn

Tónlistarskólinn í Grafarvogi býður upp á forskóla fyrir börn á fyrstu árum grunnskóla. Forskólanámið er alhliða tónlistarnám sem miðar einnig að því að undirbúa börn undir annað hljóðfæranám. Áhersla er lögð á að veita alhliða tónlistarþjálfun með sköpun, hlustun, hreyfingu og hrynleikjum. Börnin fá að kynnast hljóðfærum, ólíkum tónlistarstílum og læra grunnhugtök tónlistar. Í kennslustundum er áhersla lögð á virðingu, jákvæðni og vináttu þar sem nemendur geta upplifað og skapað í góðu umhverfi. Forskólahóparnir taka þátt í fjölda tónleika og viðburða innan síns hverfis og mynda þá Barnakór Grafarvogs og Barnakór Fossvogs . Kennsla fer fram á tveimur stöðum, í Grafarvogskirkju og Bústaðakirkju.

Á fyrsta ári forskólans er áhersla lögð á söng, blokkflautu og slagverk en einnig fá börnin að spreyta sig á fiðlunni. Námsefnið er ákaflega skemmtileg nýútgefin bók, Tuttugu töffarar, sjá tuttugutoffarar.is og Tónlistin er þín eftir Auði Guðjohnsen.

Á öðru ári forskólans er áfram áhersla á söng en í hljóðfærasmiðjum er unnið á hljómborð og ukulele. Námsefnið er meðal annars Það er gaman að spila á píanó eftir Örvar Inga Jóhannesson, Hljómleikur, kennslubók fyrir byrjendur í ukulele og hljómborðsleik eftir Helgu Þórdísi Guðmundsdóttur og Tónlistin er þín eftir Auði Guðjohnsen.

Á þriðja ári hefja börnin einkanám á sitt hljóðfæri en þá býðst nemendum að halda áfram í sönghóp þar sem unnið er með undirstöðuatriði í söngtækni. Söngnemendur halda þá áfram að æfa samsöng í röddum og þeir sem óska fá að spreyta sig í einsöng.

Tímar:

Grafarvogskirkja þriðjudagar. Forskóli 1 kl. 16:30 og Forskóli 2 kl. 17:00.

Bústaðakirkja miðvikudagar. Forskóli 1 kl. 16:30 og Forskóli 2 kl. 17:00.

Sækja um hér

Kennarar:

Auður Guðjohnsen hefur lokið mastersnámi í listkennslu frá Listaháskóla Íslands. Áður lauk hún Burtfarar- og söngkennaraprófi frá Söngskólanum í Reykjavík. Auður er mezzósópran og hefur víða komið fram hérlendis sem og erlendis. Hún hefur unnið áralangt við tónlistarsköpun og söng með börnum innan sem utan skólakerfisins og gaf út söngbók fyrir börn, Tónlistin er þínwww.tonafondur.com. Auður starfar við tónsmíðar, söng, barnakórstjórn og tónlistarkennslu á Íslandi.

Valdís Gregory hefur lokið meistaranámi í tónlist og bakkalárnámi í tónlistarkennslu í Chicago og West Hartford. Hún er söngkona og læri í fleiri ár á fiðlu, selló og píanó. Valdís hefur mikla kennslureynslu bæði hérlendis og erlendis. Fyrir tónlistarflutning hefur hún unnið til fjölda verðlauna og styrkja úr ýmsum sjóðum.